Leita í fréttum mbl.is
Embla

Hinn árlegi útimarkaður framundan

Útimarkaður 2009 33 Nú fer hann að skella á, hinn árlegi útimarkaður Laugardalshverfanna.Helgin eftir Menningarnótt er markaðshelgi, nánar tiltekið 28. ágúst.Hægt að selja og kaupa allt milli himins og jarðar.Staðsetning þetta árið er Sunnutorg og nágrennið.Kíkið á myndir frá fyrri mörkuðum hér á síðunni.

kv.

Nefndin 


Spyrjið frambjóðendur spjörunum úr

Opinn borgarafundur með frambjóðendum flokkanna

Kæru íbúar Laugardalshverfa, þá er komið að fundi með frambjóðendum til sveitarstjórnarkosninga!Íbúasamtök Laugardals blása til opins borgarafundar með frambjóðendum í Laugarnesskóla fimmtudagskvöldið 6. maí, kl. 20.

Frambjóðendur halda stutta framsögu og sitja síðan fyrir svörum eftir kaffi. Flestir flokkar hafa ákveðið að senda fulltrúa en fjórir hafa þegar ákveðið sig. Oddviti VG, Sóley Tómasdóttir kemur á fundinn.Fyrir Framsóknarflokkinn kemur Valgerður Sveinsdóttir, nýr annar maður á lista og Bjarni Karlsson fyrir Samfylkingu og Kjartan Magnússon frá Sjálfstæðisflokki. Aðrir flokkar verða einnig með fulltrúa.

NÚ ER TÆKIFÆRIÐ TIL AÐ HEYRA HVAÐ FRAMBJÓÐENDUR HAFA SEGJA UM MÁLEFNI HVERFIS OG BORGAR

Komið í Laugarnesskóla á fimmtudagskvöld!

Með kærri kveðju frá stjórn Íbúasamtaka Laugardals.

frambjodendur2_987540.jpg

Góð göngulest í gær

Göngulestin hélt af stað í mildu síðdegisveðri stundvíslega kl. 17 frá Menntaskólanum við Sund í gær. Um 10 manns tóku þátt í fyrstu lestinni. Rúnturinn reyndist taka ögn lengri tíma en ráðgert var en lestin verður auðvitað í þróun næstu laugardaga og mun laga sig að þátttakendum.

Hér er helmingur farþega, eða þeir sem á enduðu á upphafsstað en flestir nýttu sér þann kost lestarinnar að koma og fara á þeim stað er hentar hverjum og einum.  

20100116.jpg

 

 

 

 

 

kv. S 


Mikið um að vera á laugardag í Laugardal

Vá það er bara mikið um að vera um helgina. Göngulestin svokallaða hefst á laugardag, klukkustundar göngutúr fyrir alla sem áhuga hafa. Lagt af stað frá Menntaskólanum við Sund kl. 17.00 og genginn hringur sem er nokkurnveginn umhverfis Laugardalinn. Þetta verður vikulegur viðburður svo fremi að fólk taki við sér og fylli lestina. Ekki er nauðsynlegt að byrja hringinn við Menntaskólann því það er hægt að stökkva í og úr lestinni hvar sem er á leiðinni. Kort af leiðinni birtist í Laugardalsblaðinu sem kom út fyrir stuttu.Á eftir þessum göngutúr er svo hægt a skella sér á þorrablót Þróttar og halda áfram fjörinu fram á nótt. íbúasamtök Laugardals eru samstarfsaðilar Þróttar um þetta þorrablót og samtökin hvetja meðlimi til að fjölmenna og borða saman og skemmta sér. Það er hægt að nýta sér hópafslátt og þá bent á að hafa samband á netfangið laugardalur@gmail.com fyrir 15.jan. Vonandi næst þá í stóran og góðan hóp.

 

Guttormi tókst ekki að koma göngulestarkortinu hér inn en ekki er allt glatað því hér er gönguáætlunin og ætti fólk að geta áttað sig á þessu:

Nr

Staður- tillögur

Staðsetning

kl

1

MS-torgið

Skeiðarvogur v/Gnoðarvog

17:00

2

Suðurlandsstígur við...Hestinn?

Suðurlandsbraut v/Langholtsveg

17:05

3

Dórahorn?

Langholtsvegur v/Skeiðarvog

17:10

4

Rauðatorgið

Langholtsvegur v/Álfheima

17:15

5

Helgahorn?

Langholtsvegur v/Holtaveg

17:18

6

Sunnutorg

Langholtsvegur v/Laugarásveg

17:20

7

Farfuglablettur?

Laugarásvegur / Sundlaugavegur/Dalbraut

17:30

8

Sundlaugatorg, Laugatorg, Skólatorg?

Sundlaugavegur v/ Reykjaveg

17:35

9

Þróttur, KSÍ?

Reykjavegur/Engjavegur

17:40

10

Jafnvægispunktur (yin yang)?

Á mörkum Húsdýra-, Fjölskyldu- og Grasagarðs

17:45

11

Glæsibær, Túnið, Bletturinn?

Engjavegur v/Gnoðarvog

17:50

12

Suðurlandsstígur?

Stígur við Olís

17:55

 

MS-torgið

Skeiðarvogur v/Gnoðarvog

18:00


 

Svo er það þorrablótið!

 

Bestu kveðjur

f.h. Guttorms

Sigríður 


Góðan daginn Guttormur

Hmm, nú er komið nýtt ár og tímabært að vakna af dvalanum Guttormur góður.
Gutti hefur fregnað að mánaðarlega hittist hópur áhugasamra íbúa um gott og mannvænlegt hverfi. Eitthvað er að koma útúr þessu og hefur nautið legið á hleri og hefur einhverjar spurnir af því að um helgina sé að fara af stað "göngulest". Hvað er nú það? Það ætlar Guttormur að komast á snoðir um og upplýsa hér fyrir helgina.
kv.
Sigríður

Tré aprílmánaðar

tr_aprl_09_ofl_007_2Það mætti halda að við værum í áskrift því að aftur er tré mánaðarins í hverfinu. Tré aprílmánaðar er marþöll sem stendur í Grasagarði Reykjavíkur í Laugardal. Það er Skógræktarfélag Reykjavíkur sem velur þessi fallegu tré mánaðarlega.

Í maí hefur Skógræktarfélagið valið glæsilegt birki við Háteigsveg.

 

kv.

Sigríður 


Tré marsmánaðar

 Í hverjum mánuði velur Skóræktarfélag Reykjavíkur tré mánaðarins. Í marsmánuði varð fyrir valinu rúmlega 18 metra há alaskaösp (Populus trichocarpa) í garði við Langholtsveg 158.

Sögu trésins og myndir er að finna á heimasíðu Skógræktarfélagsins: http://heidmork.is/index.php?option=com_content&task=blogcategory&id=8&Itemid=68

Tré marsmánaðar, Langholtsvegi 158

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Sigríður


Aðalfundur Íbúasamtaka Laugardals í kvöld

Við minnum á Aðalfund Íbúasamtaka Laugardals 2008 í kvöld,

miðvikudaginn 5. nóvember kl. 19:30 í Laugabóli (félagsheimili Þróttar og Ármanns).

Dagskrá:

(1) Ávarp formanns

(2) Venjuleg aðalfundarstörf

(3) Yfirlit yfir störf áhugahópa

(4) Aðalerindi kvöldsins. Hjálmar Sveinsson útvarpsmaður fjallar um Stefnu og stefnuleysi skipulagsyfirvalda á höfuðborgarsvæðinu.

Fundurinn verður haldinn í framhaldi af fjölskyldu- og frístundafundi Þjónustumiðstöðvar Laugardals og Háaleitis sem hefst kl. 17:30 og stendur til 19:30.

Aðalfundur íbúasamtakanna er öllum opinn og eru íbúar hvattir til að fjölmenna!

Stjórn ÍL


Næsta síða »

Guttormur

Guttormur
Guttormur

Umhverfis og útivistarhópur ÍL bloggar hér. Við látum okkur varða ýmislegt í samfélaginu og höfum áhuga á umhverfismálum í nærumhverfinu. Netfang Guttorms er  Laugardalur@gmail.com

ÍL stendur fyrir Íbúasamtök Laugardals sem við erum hluti af.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (3.9.): 0
  • Sl. sólarhring: 17
  • Sl. viku: 1592
  • Frá upphafi: 65175

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 125
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Sept. 2010
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30    

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband